Þegjum þakklát

Elskuleg flokkssystir mín kom með eina bestu facebook færslu sem ég hef lesið í langan tíma, en hann var á þá leið að skyndi reddingar og poppulismi væri alsráðandi hér á þessu fagra skeri. Það væri engin sanngirni í samfélaginu og framtíðarsýn og jákvæðni á hverfanda hveli. Hvar erum við stödd?!

Ég velti þessu ennþá frekar fyrir mér eftir að hafa lesið færsluna hennar og komst að þeirri niðurstöðu að starfandi ríkistjórn í dag vill ekki hafa almúgann, fjölskyldu og láglaunafólkið í landinu. Þau vilja okkur burt og hafa ekki skafað af þeim áætlunum, kannski trúum við því einfaldlega ekki. Er hreinsunarstefna í gangi í samfélaginu, þar sem allt „óhagstætt“ er bolað út án orða? fólki er réttur passinn til þess að flytja sig úr landi. Ég furða mig á því að þeir séu ekki ennþá búnir að koma upp kerfi sem aðstoðar fólk við að koma sér héðan í burtu, sem fyrst. Hverjum og einum sé borgað milljón fyrir farseðil aðra leið.

Ætli draumurinn sé fólgin í því að hér muni aðeins búa hátekjufólk, hér verði lúxus samfélag þar sem enginn þarf framfærslu og allir búi við góð kjör, skattapardís ríka fólksins. Hér verður mikill meirihluti landsmanna háskólamenntaðir, það hreinsist út fáktækt og félagsbætur. Draumur Glanna glæps verður að veruleika þar sem allt verður vaðandi í sykri og sjónvörpum, ávextir verður fæða ríka fólksins. Er þetta lausnin þeirra til þess að losna við fátækt og látekju fólk? Er þetta bölsýn eða brjálæði ?

Eigum við ekki öll bara að kaupa okkur sælgæti og sjónvarp og þegja, þakklát..?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar fyrirtæki fer í þrot þá er ekki vel staðið að hlutunum, Þeir hlutir sem snúa að því að teigja lopan út um allt og draga fé inní einkarekstur sem hagnaðargróða er ekki góðs svita gerður.

Nú eru næstum sjö ár liðinn frá endurreysninni. Fyrirtækið er 7 ára gamalt núna nú ertu 8 ár í að eitthvað mannlegt á eftir að eiga sér stað og uppbygging er bara rétt að skríða af stað og ef til vill verður eitthvað undir til þess að byrja með.

Kristján Loftur (IP-tala skráð) 5.1.2015 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband